í Systrasamlaginu þar sem allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.
Thelma Björk sem er allt í senn jóga og listgreinakennari með diplóma í jákvæðri sálfræði og stofnandi Andaðu er konan á bakvið hugleiðslumorgna alla föstudaga í systrasamlaginu.
Hugleiðslustundin tekur sirka 35 mínútur í heildina með inngangi og lokaorðum út í daginn. Svo er hægt er að gefa sér tíma í kósý kaffistund á eftir í Systrasamlaginu sem mörgum finnst ómissandi.
Hvað er mantra / hugleiðsla?
Mantra / hugleiðsla gengur fyrst og fremst út á að beisla streymi óstýrlátra hugsanna sem geta haft áhrif á andlega burði okkar, stíflað hugarflæði okkar og valdið streitu. Í búddismanum er gjarnan talað um apaheilann sem dæmi um hvernig óstýrlátar hugsanir mannsheilans geta hegðað sér, nánast án þess að við fáum nokkuð við ráðið. Líkt og þær hoppi og skoppi á milli trjágreina og unni hvorki sér (huganum) né okkur (líkamanum) hvíldar.
Hugleiðsla hefur verið stunduð í þúsundir ára, er til í ýmsum myndum og á rætur í flestum menningarsamfélögum. Í byrjun vildi fólk komast í djúpa snertingu við hina helgu og dulrænu krafta náttúrunnar, en nú á dögum er oftast hugleitt til að ná slökun og kyrra hugann. Í hugleiðslu með möntrum er farið með endurtekna þulu í huganum eða upphátt til að ná hlutlausum huga og til að slökkva á truflandi hugsunum. Með möntrusöng er unnið með orð eða röð orða sem eru endurtekin til að framkalla breytingu á huga og vitund. Það færir mér innri ró að syngja möntrur og það orðið einn hluti af minni andlegu næringu. Það sefar hugann og hjálpar okkur að losa upp óæskileg hugsanamynstur sem valda okkur hugarangri.
Hugleiðsla snýst um að vingast við það sem við erum akkúrat núna, en ekki að henda því sem við erum til að verða eitthvað betri. „Með því að hugleiða erum við að vingast við það sem við erum nú þegar. Grunnurinn ert þú, við lærum á hæfileika okkar til að slaka á með skýrleika, rými og með þeirri opnu meðvitund sem þegar er til staðar í huga okkar. Við upplifum stundir þar sem við erum hér og og nú og að það sé einfalt, afdráttarlaust og án óreiðu.“ (Chödrön, 2001)
Leikskóli fyrir fullorðið fólk byggir á jákvæðri sálfræði og jákvæðum inngripum til að stuðla að aukinni vellíðan og meiri hamingju.
Leikskóli fyrir fullorðið fólk er vettvangur fyrir heilbrigði , gleði og vellíðan.
Markmið skólans er að skapa vettvang fyrir fullorðið fólk til að koma saman og leika sér og styrkja sig líkamlega og andlega.
Leikskólinn er staður sem einblínir á það jákvæða og góða án þessa að afneita erfiðum tilfinningum. Megin áhersla er lögð á jákvæð inngrip úr jákvæðri sálfræði, núvitund, leikinn og gleðina. Þar sem unnið er út frá flæði og skynjun í gengum leik, hugleiðslu og samveru.
Leikskólinn er hugsaður fyrir fólk 18 ára og eldra, sem vilja líða betur áháð því hvernig þeim líður í dag. Tilvalið fyrir þreyttar mæður, einstaklinga í vaktavinnu, fólk í veikindaleyfi, hlutastarfsfólk eða einstaklinga sem eru ekki lengur á vinnumarkaði. Hægt verður að skrá sig hálfan eða heilan dag 1-4 vikur í senn. Einnig verður hægt að bóka sér tíma fyrir hópefli.
Opið fyrir skráningar á
leikskolifff@gmail.com
Í jógatímunum mínum legg ég áherslu á öndun, teygjur, styrk, liðleik, hugleiðslu og slökun.
Öndunaræfingar hjálpa okkur að dýpka andardráttinn og kyrra hugann.
Jógaæfingarnar draga úr stirðleika líkamans og auka teygjanleika og mýkt.
Hugleiðslan hjálpar við að hægja á huganum og njóta augnabliksins.
Slökunin gefur hvíld, frið og endurnæringu.
Thelma Björk hefur verið að kenna jóga og hugleiðslu síðan hún útskrifaðist árið 2014 í Sólum, Jógasetrinu, Barnaskóla Hjallastefnunnar og í Systrasamlaginu. Ásamt því að kenna fjölda annara námskeiða.
Thelma Björk hefur einnig unnið með Systrasamlaginu í nokkrun tíma þar sem hún hefur meðal annars tekið þátt í að leiða jóga og hugleiðslu fyrir þeirra frægu sveitasamflot og kennt jóga í verslun þeirra. Thelma Björk er með hugleiðslu alla föstudagsmorgna kl: 10:00 í Systrasamlaginu, Óðinsgötu 1. Allir velkomnir og frítt inn.
Ég finn ég fyrir áþreifanlegri tengingu á milli huga við líkama og sál gegnum jóga og handavinnu. Orðið jóga þýðir sameining huga líkama og sálar. Ég tel að það sé gífulega mikil þörf á núvitund í daglegu lífi og sérstaklega í skólakerfinu. Huga þarf að önduninni eins og í jóganu því við erum jú alltaf að reyna að ná stjórn á huganum. Þegar við höfum náð stjórn á önduninni þá náum við stjórn á huganum. Þegar við höfum stjórn á huganum er allt mögulegt.
Handverkið er mér hugleiðsla sem styrkti hug minn, hjarta og hönd.
Slaka og skapa eru námskeið þar sem unnið er útfrá flæði og skynjun í gegnum handverk og hugleiðslu.
Kynntar eru mismunandi aðferðir af útsaumi og farið er í ferðalag hugmyndavinnu í gegnum slökunarferli sem Thelma Björk hefur verið að þróa fyrir skapandi huga.
Kennslumarkmið:
Á námskeiðinu er lögð áhersla á skapandi nálgun og tilraunir í útsaumi. Áhersla er lögð á að tengja milli hefðbundinna og óhefðbundinna nálgana í útsaumi. Gerar eru tilraunir með mismunandi útsaum í textíl með eigin áhöldum og aðferðum. Nemendur gera tilraunir í útsaum blandaðar við upplifanir og æfingar.
Hvernig getum við skapað listaverk sem er byggt á minningum? Hver eru tengslin á milli hugar og handar? Í námskeiðinu verður meðal annars leitast við að svara þessum spurningum.
Næstu námskeið verða auglýst hér.
Hafðu samband á email jogamedthelmu@gmail eða í síma 8441992 ef þú vilt fá mig í heimsókn á vinnustaðinn þinn, vinkonuhitting eða vilt koma til mín í einkatíma.
Áhersla er á öndun, teygjur, hugleiðslu og slökun.
Í lok hvers tíma er góð slökun sem gefur góða hvíld sem nærir huga, hjarta og líkama.
Leggðu inná þig , þú átt það skilð
Hlakka til að heyra frá þér
Thelma Björk
Andaðu bíður uppá nærandi jóga og hugleiðslu fyrir 60 ára og eldri á stólum þar sem boðið er upp á rólegar æfingar eftir getu hvers og eins.
Áhersla er á öndun, teygjur, hugleiðslu og slökun.
Í lok hvers tíma er góð slökun sem gefur góða hvíld sem nærir huga, hjarta og líkama.
Kennari er Thelma Björk stofandi Andaðu. Thelma Björk hefur verið að kenna jóga fyrir 60 ára og eldri í Jógasetrinu.
Hafðu samband á email jogamedthelmu@gmail ef þú vilt fá mig í heimsókn á vinnustaðinn þinn eða félagsheimilið.
Kærleikskveðja
Thelma Björk
THELMA DESIGN.
Móðuramma mín Brynhildur Friðriksdóttir kenndi mér handavinnu, útsaum, bróderí, hekl og að prjóna. Ég fann strax hvað það róaði mig sem barn að gera handavinnu með ömmu og hvað það skipti mig miklu máli að geta notað hendurnar á mér til skapandi verka og að vera undir leiðsögn ömmu. Yfir handavinnunni sagði hún mér sögur af sjálfri sér og formæðrum okkar.
Saga Thelma design er persónuleg, drifin áfram af minningum og formæðrum. Eftir að ég útskrifaðist sem fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands árið 2005 stofnaði ég Thelma design og sérhæfði mig í handgerðum höfuðfötum, framleiddum af þremur ættliðum, með það að leiðarljósi að viðhalda minningum og handverkshefðinni. Það skipti mig miklu máli að hafa ömmu og mömmu með mér í allri vinnunni þar sem aðalmarkmið Thelma design er að viðhalda menningararfinum og minningum sem við eigum saman. Enn fremur hefur Thelma design haft það að leiðarljósi að hvetja konur á öllum aldri til að nota höfuðföt oftar. Höfuðfötin eiga að gefa konum styrk til að tjá sig á jákvæðan og listrænan hátt. Höfuðskartið stendur fyrir menningararf minn og formæðra minna. Allt sem er hannað og framleitt undir merkjum Thelma design er handgert og mikið er endurunnið. Meðal annars er notast við gamlar blúndur, efni, krosssaum og annað handverk og það sett í nýjan búning.
Þegar höfuðfötin mín eru skoðuð vel sést hvar ég hef fengið innblástur. Sjá má fortíð og arfleifð blandast við minningar og núvitund. Það er því engin tilviljun að allt sem ég geri er handunnið af okkur þremur; ömmu, mömmu og mér, en fjöldaframleiðsla hefur aldrei komið til greina.
Tíminn sem við þrjár höfum átt saman er afar dýrmætur, þessar samverustundir þar sem við saumum og ræðum gamla tíma til samanburðar við daginn í dag og tilgang Thelma design. Ég hef alltaf framleitt allt sjálf og hér á Íslandi en þegar mest hefur verið að gera hef ég fengið vel valdar handverkskonur með mér í lið.
Ég hef verið það lánsöm að höfuðskartið mitt hefur endað í eigu margra kvenna á öllum aldri alls staðar að úr heiminum. Sem dæmi má nefna norsku krónprinsessuna Mette-Marit, söngkonurnar Björk Guðmundsdóttur og Emilíönu Torrini og fjölda leikkvenna og dansara hér á Íslandi og erlendis. Konurnar sem keypt hafa höfuðfötin mín eru á aldrinum 18-85 ára og ganga með þau við öll möguleg tilefni.
Í gegnum þessar konur hefur mér tekist eitt af markmiðum Thelma design, að miðla menningararfi mínum. Hattarnir lifna við þegar rétta konan tengist þeim og ber þá stolt á höfði sér.
HIDDEN BEAUTY
Opnun ljósmyndasýningar Thelmu Bjarkar á falinni fegurð í Systrasamlaginu.
Thelma Björk sem er menntaður fatahönnuður, jóga og hugleiðslukennari er á sífelldum snúningi í sinni listsköpun og fangar gjarnan það sem er ekki víst að aðrir taki eftir.
Að undanförnu, raunar eins og svo oft áður, hefur Thelma Björk setið við hattagerð og hugleiðslu. En nú er það útkoman sem er önnur.
Hér er falin fegurð dregin fram í dagsljósið, fegurð í nýju ljósi.
Falin fegurð stendur saman af földum fjársjóðum hatta sem Thelma Björk endurhannar og nýju höfuðskarti sem fæddist í ferlinu.
Hattarnir fá svo nýja merkingu með fyrirsætunum sem ljá höfuðskarti Thelmu Bjarkar alveg einstakan karakter.
Fyrirsæturnar eru Arna Dís og Katla Sif.
Ljósmyndirnar tók Ásta Kristjánsdóttir.
Sýningin opnar í Systrasamlaginu föstudaginn 9. desember
klukkan 17:00 og eru allir velkomnir.
Boðið verður upp á bláan, jafnvel fjólubláan höfuðdrykk í tilefni dagsins.
Bolir og plaköt í takmörkuðu upplagi í tilefni sýningarinnar verða til sölu i Systrasamlaginu og hattarnir verða síðan til sölu hjá STEiNUNN á Grandagarði 17 í desember.
Sýningin stendur út janúar 2023
Sýningin Hjartað í hendinni fléttar saman á fallegan hátt minningum, tilfinningum og fyrri reynslu sem eru notuð til að móta nýjar hugmyndir og ný verkefni. Þessar hugmyndir og verkefni geta svo aftur orðið að innblæstri fyrir mann sjálfan og jafnvel einhvern annan.
Handavinna og útsaumur er hluti af menningararfi Thelmu Bjarkar. Amma hennar kenndi henni að sauma út þegar hún var ung stúlka, það var því mjög eðlilegt fyrir hana að velja textíl sem listmiðil. Thelma hefur stundað rannsóknir á möguleikum útsaums og handavinnu í tengslum við þann aðkallandi samfélagsvanda sem tengist hraðri neyslu og skynditísku.
Með því að bjóða upp á þátttöku-listasmiðjur skapar hún aðstæður sem gefa tækifæri til að meta þá möguleika sem handavinna býður upp á í tengslum við vellíðan og samfélagslega þátttöku.
Innrömmuðu minningadúkarnir sem nú eru sýndir á HönnunarMars voru unnir í vinnustofum fyrir mismunandi hópa. Thelma byrjaði á auðum striga, en hönnunin og myndbyggingin byggðist upp af útsaumi þátttakendanna, línu fyrir línu. Það er ekki fyrr en Thelma var búin að strengja efnið í ramma sem hún sá verkið í heild sinni og það öðlast sitt eigið líf. Útsaumuðu dúkarnir endurspegla fegurð samvinnunnar og tilfinningu fyrir samstöðu. Útsaumuðu stólarnir eru unnir úr gömlum krosssaumsverkum sem Thelmu hefur áskornast í gegnum árin. Verkin hefa fengið nýtt líf með handbragði Thelmu og endurfæðast svo í formi mismunandi stóla.
Meðvitund Thelmu um sögulegt og menningarlegt mikilvægi listmiðilsins er sterk. Hún hefur sinn eigin stíl en byggir á þeirri reynslu sem hún hefur aflað sér í starfi sínu sem fatahönnuður. Nálganir sínar byggir hún á hefðum sögunnar, tækni og þekkingu. Verk hennar eru fáguð, stílhrein, nútímaleg en samt hefðbundin, sjálfsprottin og huglæg.
Sýningin Hjartað í hendinni var sýnd á hönnunarmars árið 2022. Sýningastaður: STEiNUNN, Grandagarði 17, 101 Reykjavík
“Finndu þinn innri spaða”
-Aðventu- og jólasýning Thelmu Bjarkar í Systrasamlaginu.
Thelma Björk er í sífelldri leit í sinni listsköpun og vinnur út frá hugmyndum sínum um tengslin milli hugar og handa og hvernig hún getur skapað listaverk byggð á minningum?
Laugardaginn 4. desember fáum við að sjá frábærlega forvitnilega sýningu á útsaumuðum “tennis” spöðum en kveikjan af þessum óvenjulegu verkum er handverk sem móðir hennar gerði undir handleiðslu móður sinnar (ömmu Thelmu Bjarkar) þegar hún var ung táta.
Thelma sér gersemarnar víða og kann svo sannarlega að gefa gömlum hlutum, sem aðrir sjá sem rusl, nýtt og spennandi líf.
Thelma Björk vinnur verk sín út frá flæði og skynjun í gegnum handverk og hugleiðslu sem hún lýsir svo fallega sjálf: “Mig langar að draga fram í dagsljósið hversu rík handverkshefðin okkar er og hvernig hún er að mörgu leyti núvitund 21. aldarinnar. “ Og Thelma bætir við: “Útsaumur er seinlegt starf og kallar á útsjónasemi og nákvæmni. Verðlaunin eru síðan hugarró og valdefling.”
Verkin eru bæði til sýnis og sölu.
Sýningin stendur út desember.
SLÖKUN Í BORG, fyrir alla, samstarfsverkefni Thelmu Bjarkar og Systrasamlagsins, var ýtt úr vör 10. nóvember 2017 í Systrasamlaginu Óðinsgötu 1. Verkefnið, sem standa mun yfir næstu mánuði, miðar að því að fá sem flesta til að slaka á og hugleiða við ólíkar aðstæðum á ólíkum stöðum í borginni. Verkefnið er styrkt af miðbæjarsjóði Reykjavíkurborgar.
Fyrsta verkefnið er að bjóða öllum sem vilja að vera þátttakendur í 40 daga hugleiðslu sem hefst í Systrasamlaginu 10. nóvember og lýkur á sama stað 19. desember undir leiðsögn Thelmu Bjarkar.
Hluti af 40 daga hugleiðslunni fer m.a. daglega fram 11. til 19. desember í Systrasamlaginu kl. 16. 30. Við verðum einnig á AALTO bistró í Norræna húsinu 9. og 10. desember (nánari tímasetning í Norræna húsinu verður auglýst hér á vefnum og facebókarsíðu Andaðu).
Mörg önnur slökunar- og hugleiðsluverkefni eru í farvatninu á ólíkum stöðum og tímum í borginni. En auk Systrasamlagsins og AALTO bistro munu hugleiðslu og slökunarstundir eiga sér stað í kirkju, í vatni, undir berum himni, við saumaborðið og á stöðum sem þið hafið ef vill ekki gert ykkur í hugarlund að hægt sé að hugleiða eða slaka á.
40 daga hugleiðslan
Nú þegar styttist í aðventuna finnst okkur við hæfi að hefja SLÖKUN Í BORG, fyrir alla, á 40 daga hugleiðslu í Systrasamlaginu 10. nóvember kl. 18.30.
Fyrir valinu hefur orðið svokölluð heilunarhugleiðsla sem gott er að stunda í 11 mínútur á dag (eða lengur eða skemur). Thelma Björk fer vandlega yfir heilunarhugleiðsluna 10. nóvember í Systrasamlaginu, sem allir geta svo tekið með sér og stundað hvar og hvenær sem er.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Hvað er hugleiðsla og slökun?
Fjölmargar vísindalegar rannsóknir styðja að hugleiðsla og slökun getur auðveldlega dregið úr daglegi streitu, fært okkur innri frið og bætt líkamlega og andlega líðan okkar, sem er vaxandi þörf á í nútímasamfélagi. Hugleiðsla hefur verið stunduð í þúsundir ára. Upphaflega svo fólk kæmist í djúpa snertingu við helga og dulræna krafta náttúrunnar, en í dag miklu fremur til að ná slökun og kyrra hugann, þótt annað og meira geti vissulega hangið á spýtunni.
Aðeins örfárra mínútna slökun og hugleiðsla á dag getur raðað öllu í réttar hillur, róað og fært innri frið. Allir geta iðkað slökun og hugleiðslu. Það er einfalt og ódýrt og krefst í raun engra sérstakra hæfileika. Slökun og hugleiðsla þarfnast heldur engrar sérstakrar umgjarðar. Hugleiðsla og slökun snúast að miklu leyti um að vingast við það sem við erum nú þegar og um að vera til staðar, með okkur sjálfum, öðru fólki og samfélagi okkar.
SLÖKUN Í BORG, fyrir alla, er samstarfsverkefni Thelmu Bjarkar og Systrasamlagsins.
Fyrsta árið okkar fengum við styrk frá Reykjavíkurborg sem nýttist okkur vel og erum við afar þakklátar fyrir samstarfið.